Úr ljóðasafninu
Eftirfarandi ljóð eru úr ljóðasafni mínu sem mun koma út á næsta ári, 2021. Ég birti stundum ljóð eftir sjálfa mig á Instagram síðu minni: @raggagudmund
sifjar
það er skrítið, eflaust pínu sjúkt
hvernig ég leyfi þér að særa mig
hvernig ég leyfi þér að leggja mig í rúst
en hika þó ekki að sækja til þín skjól
nú þegar veröld mín skekur allt í kring –
því rödd þín sefar mitt villta hjarta
og faðmur þinn græðir mína tættu sál
bergmál
í bergmáli fortíðar minnar
finn ég fyrir þér
breytir engu –
þó ég reyni að flýja
kafi dýpstu höf
klífi hæðstu tinda
þú ert alltaf þar
með mér
samtvinnaður
sálu minni
innsiglaður
í hjarta mitt
to my love
you are the sturdy rock
in my stormy sea
you are the anchor
when I drift aimlessly
you are the light
in my darkness
you are the sweetness
to my bitterness
you heal me
with each tender kiss
with each soft touch
with each kind word
with your undying
unfaltering
unconditional love
you are the reason
I am not lost
in the wilderness
and alone
in this world
you are my love
my life
my everything